Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 46/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 46/2023

Fimmtudaginn 23. mars 2023

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. janúar 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. janúar 2022 og var umsóknin samþykkt 24. febrúar 2022. Þann 31. október 2022 var kærandi boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun sem fara átti fram daginn eftir. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri í viðtalið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi hvorki mætti í viðtalið né boðaði forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda til þess að hafa ekki mætt í boðað viðtal. Svar barst ekki. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. janúar 2023. Með bréfi, dags. 2. febrúar 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 21. febrúar 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. febrúar 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa ekki komist á fund þar sem hann geti ekki skráð sig inn á tölvupóstfang sitt. Frá mars 2022 hafi hann verið búsettur í bílskúr vinar síns. Ástand kæranda sé erfitt og hann sé ekki með aðgang að interneti á hverjum degi. Samkvæmt Vinnumálastofnun hafi verið hringt í kæranda, tölvupóstur sendur og smáskilaboð en hann sé ekki með neitt í símanum sínum og geti ekki lesið tölvupóst. Kærandi tekur fram að hann hafi áður verið þunglyndur og enginn vilji hjálpa honum. Peningarnir frá Vinnumálastofnun hjálpi kæranda að lifa af en án þeirra lifi hann bara frá degi til dags, borði mat upp úr rusli. Hann geti ekki fengið félagslega aðstoð þar sem hann sé ekki með löglegt heimilisfang.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 31. janúar 2022. Með erindi, dags. 24. febrúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 31. október 2022 hafi kærandi verið boðaður til viðtals á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík klukkan 12:30 þann 1. nóvember 2022. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Kæranda hafi verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á uppgefið netfang kæranda. Jafnframt hafi verið send tilkynning með smáskilaboðum í síma kæranda og á ,,Mínar síður“. Kærandi hafi hvorki mætt til umrædds viðtals né boðað forföll.

Með erindi, dags. 9. nóvember 2022, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hafa ekki mætt til boðaðs viðtals þann 1. nóvember 2022. Áréttað hafi verið að atvinnuleitandi gæti þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga hefði hann hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að veita Vinnumálastofnun skýringar og gögn. Kærandi hafi aftur á móti ekki veitt stofnuninni neinar skýringar á fjarveru sinni. Með erindi, dags. 17. nóvember 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Ástæða þess hafi verið sú að kærandi hafi hvorki mætt til boðaðs viðtals né boðað forföll.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Samkvæmt [h-lið] 1. mgr.14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveður. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Í 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar hafi eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda. Jafnframt sé í 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kveðið á um að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það er fortakslaust skilyrði svo að unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa viðkomandi kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum sem honum séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og í önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt til viðtals þann 1. nóvember 2022 en áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á ,,Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hefur í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála veitt skýringar á fjarveru sinni til boðaðs viðtals. Þær skýringar lúti einkum að því að hann hafi ekki séð boðun Vinnumálastofnunar. Hann geti ekki skráð sig inn á pósthólf sitt og hafi ekki aðgang að interneti alla daga. Eins og áður segi hafi Vinnumálastofnun sent boðun á uppgefið netfang kæranda og símanúmer. Þá hafi honum jafnframt verið send tilkynning á ,,Mínar síðum“. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi vísi stofnunin einkum til 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar sé kveðið á um að Vinnumálastofnun skuli upplýsa umsækjanda um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljist upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti samkvæmt lögunum. Við umsókn um atvinnuleysisbætur beri atvinnuleitanda sjálfum að tilgreina með hvaða hætti Vinnumálastofnun skuli koma upplýsingum og tilkynningum til viðkomandi. Atvinnuleitendum standi þannig til boða að Vinnumálastofnun komi skilaboðum áleiðis rafrænt eða með bréfpósti. Kærandi hafi sjálfur valið að vera í rafrænum samskiptum við stofnunina. Þá hafi kæranda sérstaklega verið tilkynnt með erindi, dags. 24. febrúar 2022, að Vinnumálastofnun myndi framvegis koma skilaboðum til hans með tölvupósti, skilaboðum inn á ,,Mínar síðum“ eða með smáskilaboðum. Skilaboð myndu einnig berast með bréfpósti hafi hann óskað eftir því. Boðun til viðtals hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þá sé það jafnframt mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda þess efnis að hann hafi ekki aðgang að interneti geti ekki talist gildar. Eðli máls samkvæmt þurfi þeir atvinnuleitendur sem eigi í rafrænum samskiptum við Vinnumálastofnun að leita leiða til þess að hafa aðgang að interneti. Að öðrum kosti geti þeir ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Hafi atvinnuleitendur ekki aðgang að interneti hljóti þeim að bera að tilkynna Vinnumálastofnun um slíkt svo að stofnunin geti gert viðeigandi ráðstafanir, til að mynda komið mikilvægum skilaboðum og tilkynningum áleiðis með öðrum hætti.

Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 7. mgr. 9. gr. og 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi verið beittur viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þann 26. júlí 2022. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna skuli sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57. til 59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr., ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, hafi átt sér stað á sama tímabili samkvæmt 29. gr. laganna og því hafi komið til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga kæranda, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Kærandi skuli því ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun með sannanlegum hætti, þ.e. með tölvupósti, smáskilaboðum og skilaboðum á „Mínum síðum“. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 26. júlí 2022 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. nóvember 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum